- sweety -
11.05.2007 15:30:19 / meb1

boring að horfa á eurovision ein :(

HAHAHA

ég er að horfa á endursýninguna á eurovision og pólska lagið er samblanda af fergie og ég man ekki alveg hvað hin hljómsveitin heitir ...hmmm ....það kemur kannski seinna :)

hehe ...ótrúlega fyndin, en mikið svakalega er þetta leiðinleg keppni!!! kannski bara af því að ég sit hérna ein, og get ekki sett út á fólkið með einhverjum :p hehe ...evil person :klikk:

en annars er það að frétta að ég er búin með 4 af 5 prófum og ég held að ég sé búin að ná þeim öllum :) þannig að kannski verður þetta fyrsta sumarið sem að ég þarf ekki að taka endurtektarpróf ;) og þá get ég fengið bs gráðuna í júní :D en það verður komið í ljós fyrir 23 mai ;)

en já ...best að halda áfram að láta mér leiðast

p.s. ég vakti í nótt til að læra, en samt get ég ekki sofnað :(

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 06:44:32 / meb1

Fyrsta prófið eftir 2 og hálfan tíma

úff, ég get ekki sofið ...mig er búið að dreyma þetta námsefni núna 3 nætur í röð 8|...ég vaknaði fyrir svona klukkutíma með hugsunina "Shit ...ég man ekki hvort að amínóglýkósíðar bindast 30S ríbósómum" svo lá ég uppí rúmi í smá stund, en ákvað að lokum að fara fram og kíkja á glósubunkann! sem að ég er búin að skrifa fyrir þetta próf, ég held ég hafi ekki skrifað svona miklar glósur fyrir próf áður

ó vell, ég held að málið sé bara að fara á fætur, þar sem að ég er ekkert svaðalega þreytt, ég held að það sé stressið ...svo er ég svo svöng ....eða að magasýrurnar mínar séu á fullu, er ekki viss ...allavega ég held að bakarí fari að opna bráðlega :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 15:52:58 / meb1

Af hverju er eurovision ekki viku seinna?

Það er glatað að vera í prófum þegar eurovision er!!! forkeppnin er 10 og aðalkeppnin 12 mai, og ég þarf að fara í lyfjagerðarfræði próf 11 mai!!!  ohhh þetta er ömurlegt!

ó well "life is a bitch but you love it" eða eitthvað í þá áttina :p

annars var ég að lesa um ákveðið lyf þar sem virka efnið heitir cyproterone og þetta er anti-androgen verkun, en allavega þessu er lýst svona

"Lyfið er notað til að ná tökum á sjúklegri kynhvöt og/eða afbrigðilegri kyngetu hjá karlmönnum. Lyfið er einnig notað hjá sjúklingum með krabbamein í blöðruhálskirtli"

hmm ...ekki mjög skemmtileg lýsing ...en svona til fróðleiks þá minnir mig blöðruhálskirtilskrabbamein sé eitt af algengustu krabbameinum sem að karlmenn geti fengið.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 21:56:43 / meb1

...hvað á maður að bralla á föstudegi ???

Vá hvað mér leiðist .... :( 

Það er ósköp lítið að frétta héðan úr vesturbænum ...er eitthvað aðeins að komast í lærigírinn og er búin að vera svoldið dugleg að mæta í hreyfingu :)

En fyrir viku var kökugerðarkeppni 3ja árs lybbalinga og má þá að því tilefni nefna það að við Perla unnum í flokkunum bragðbesta kakan og fallegasta kaka :D og ekki áttum við séns í frumlegustu kökuna, þar sem að við vorum bara með venjulega marensköku með ávöxtum og rjóma ...á meðan sumir komu með köku sem leit út eins og viagra tafla, hylki jafnvel leg og einhver bomba með súkkulaðistílum, svo maður gleymir ekki chilly kökunni ;)

en það má sjá nokkrar myndir á síðu lybbastelpna http://blog.central.is/lybbastelpur

þetta var skemmtilegur föstudagur :)

 

en svona í lokin, þá átti ég held ég allra mestu ljóskusetningu sem ég hef sagt alla mína ævi í síðustu viku "Er 1. mai ekki alltaf fimmtudagur?"  og síðan tók það mig pínu stund að fatta af hverju Hjalti horfði svona skringilega á mig :^)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 20:06:07 / meb1

Gleðilega páska :)

þá er maður búin að opna páskaeggin :) ég ætlaði ekki að borða mikið af þeim, þannig að ég keypti mér 1 númer 4 og svo gaf lyfjaver mér 1 númer 5 og eins og venja er þá leitum við af eggi númer 1 hjá ömmu eftir páskamatinn :) og ég er alveg ágætlega sátt við málshættina mína ...fékk meira að segja 3 í egginu frá ömmu :)

 

Allur er varinn góður

Sá grætur ekki gullið sem ekki átti það

Lífið er það sem hendir mann meðan maður er önnum kafinn við annað

Augu ei leyna ef ástin er heit

Lestur er lærdómsins lykill

 

hmmm ....oki, kannski maður þurfi að vera duglegri að læra, en ekki alveg missa sig í gleðinni :P hehe ...eða að málshættir þýði ekki neitt :P

now playing: Dr. Hook - The Millionaire
         -ég er bara alveg dýrka þessa hljómsveit!!! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 14:54:21 / meb1

Officially komið vor :D

Það er officially komið vor :) LOKSINS!!!

Ég og Hjalti skelltum okkur í smá körfubolta og maður þarf að fara að byrja að læra fyrir próf og við vorum að kaupa okkur páskaegg :) og ég á afmæli eftir 2 vikur :) wúhú :P

Þannig að núna er komið vor :) Til hamingju með það allir saman =)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 18:35:31 / meb1

Til hamingju með afmælið :D

\"\"Afmælisbarn dagsins er Hjalti sæti :) Strákurinn orðinn 24 ára :)

Það þýðir líka það að ég verð 23 eftir 20 daga :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 01:38:50 / meb1

OMG

var að horfa á jay leno ...og OMG ég á ekki orð yfir þeim sem voru að syngja ....

??????

jahérna ...


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 21:12:05 / meb1

uppskriftasíða :)

téck it out ;)

http://cafesigrun.com/

fullt af uppskriftum ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 12:09:55 / meb1

jei ...ekkert GMP verkefni :D

Wúhú ...það verður ekkert GMP verkefni :D Mikið er ég glöð, þá er bara ekkert að gera nema byrja að læra námsefnið :) ekkert eitthvað verkefni sem maður verður að gera í páskafríinu :D

MIKIÐ ER LÍFIÐ LJÚFT !!!!

En að öðru, þá er líklegast að dansa á einhverri danssýningu á laugardaginn kemur :) það er líka mjög gaman :) málið er það að börnin í kramhúsinu eru með sýningu og við erum svona auka skemmtiatriði ;) Þannig að á laugardaginn klukkan 8 held ég í tjarnabíó er málið ;)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 19:29:33 / meb1

Nokkrar myndir komnar inn ;)

Þá er komið að því, báðar árshátíðrnar eru búnar ...það var alveg ágætis stemming á þeim og bara nokkuð gaman.

Fyrri árshátíðin var með skólanum og var hún á hótel sögu og fengum við geðveikan fordrykk í boði lyf og heilsu og má sjá örfáar myndir frá þeirri skemmtun hér: http://sweetymaria.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album10 

Seinni árshátíðin var um helgina á Hótel Glym í Hvalfirði, það var geekt góður matur og ég hef aldrei!!! borðað svona mikið á árshátíð eða nokkurri annarri skemmtun áður :P Ég hef engar myndir frá þessari skemmtun en hér er auglýsing hótelsins: http://www.youtube.com/watch?v=M4-gmFyPH14 geekt fyndin auglýsing á bresku =)

og úr því að ég var að setja árshátíðarmyndirnar inn, setti líka inn myndir frá partýinu hennar Perlu :) http://sweetymaria.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album10

En þangað til næst ...gangi bara öllum vel ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:36:08 / meb1

Próftaflan komin :) og maður er pínu veik heima :(

ósköp lítið að frétta héðan nema það að maður er pínu veikur :( það er nú aldrei gaman ...ég sleppti því meira að segja að fara með steina og hjalta í bíó í kvöld 8| I KNOW ...ótrúlegt en satt

EN það er árshátíð lybbalinga á laugardaginn :D það er búið að plana allan daginn, en hann byrjar í hádeginu í baðstofunni á laugum, síðan er fyrirpartý og svo býður lyf og heilsa okkur í fordrykk og svo hefst árshátíð einhvern tímann um kvöldið og þegar það verður búið að loka hótelinu eða maður nennir ekki að vera þar lengur vill Pravda endilega fá okkur í heimsókn :) þannig að ef maður vill er hægt að gera góða dag/kvöldstund úr þessu :)

en svo er það notla skólinn, próf og fyrirlestur á mánudaginn og svo skila ritgerð og halda annan fyrirlestur á þriðjudaginn eftir viku ...úfff *ein að deyja úr sjálfsvorkun* :P
hehe ...en neinei, þetta er allt saman á góðu róli, prófið gildir meira að segja varla neitt :P en annað varðandi próf, þá lýtur próftaflan mín svona út þetta vormisseri:

Lyfjaefnafræði - fim. 3. mai
Samþætt sjúkdóma og lyfhrifafræði - mán. 7. mai
Lífræn efnafræði 2 - mið. 9. mai
Lyfjagerðarfræði 2 - fös. 11. mai
Ónæmisfræði - þri. 15. mai

og þar sem að ég útskrifast 16. júní ef að ég næ öllum prófunum 8), þá verða kennararnir að vera búnir að skila öllum einkunnunum fyrir 25 mai :) þannig að ég vona að þetta eigi eftir að ganga vel, enn sem komið er, er ég bara stressuð fyrir lífræna prófinu, en hver veit, það eru um 63 daga í fyrsta prófið og fyrir utan verkefnin sem að ég taldi upp áðan á ég bara líklegast 2 verklega tíma í töfluslætti eftir og eitthvað GMP verkefni, sem að ég ætla nú ekki að stressa mig yfir alveg strax :P 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 18:34:43 / meb1

loksins búin að sækja nýtt lykilorð :)

ó well

 þá er maður loksins búin að ná sér í nýtt lykilorð :) þannig að vonandi fer eitthvað að gerast hér á næstunni :)

 En annars er það að frétta að það er búið að vera svoldið mikið að gera undanfarið og verður líklegast mikið að gera næstu daga :p

en já, nú er málið að fara að læra pínu, þar sem að það er líklegast próf á þriðjudaginn :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 03:21:02 / meb1

Get ekki sofnað :(

Hvað er málið með það að geta ekki sofnað??? Ohhh ...

Ég er búin að horfa á heilan friends disk, og búin að fara í spider, sudoku og hearts leikinn. *andvarp* ég meira að segja svæfði Hjalta því hann átti einnig erfitt með að sofna ...vesen, ég er meira að segja búin að vekja hann tvisvar eftir að hann sofnaði (honum að kenna að segja alltaf að ég megi vekja hann þegar ég vil :P) en hann sofnar bara strax aftur :( I know ...ég er voða high maintense :P

En þá er komið að pælingu dagsins ...ég var að lesa í dag að svona púst stuff, sem að maður notar t.d ef að maður er með astma er yfirleitt gert úr áli, því það er svoldið inert gagnvart efninu og svona þannig að það er ekkert endilega alltaf að húða að innan. En hugsunin mín var: Hvað ef einhver er með ofnæmi fyrir áli? getur þá viðkomandi ekki fengið astmalyfið sitt? eða þarf hann bara að fá ofnæmiskast í hvert sinn sem hann þarf að pústa? hmmm ....ég held hins vegar að ofnæmi fyrir áli sé frekar sjaldgæft og ef svo illa vildi til þá eru stundum notuð önnur tvö efni í þetta púst stuff.Ég náði ekki alveg að klára kaflann, en eins og með diskusinn og ventolin er það held ég bæði til í svona pústi og disk, þannig að þá er þetta mál bara leyst held ég :P

En ég hugsa að ég nenni ekki að fara að sofa núna ...reyni kannski í smá stund í viðbót :P

Now playing: Prove yourself - Radiohead


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 19:23:30 / meb1

jæja, skólinn byrjar á mánudaginn :)

Gleiðlegt nýtt ár, alle sammen :D og tak með det gamle ;) 
     hehe ...hmmm, ég veit ekki alveg á hvaða máli þetta á að vera :P

ó well, þá er "jólafríið" að verða búið ...

Annars er ósköp fátt að frétta héðan úr vesturbænum, mig reyndar hlakkar soldið til að byrja í skólanum, ég er meira að segja búin að kaupa bækur :) eina svona bleika og eina ljós fjólubláa ;) hehe svaka krúttilegar :P

En það er komin helgi ...Wúhú ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9